top of page

 

                              Hvernig varð svona mikill munur á milli  landana?  

 

Eftir að Kóreu var skipt fóru löndin hvort sína leið. Munurinn á löndunum hefur lítið að gera með svæða bundinn mun heldur grundvallast munurinn á kommúniskum áhrifunum sem Rússland og Kína hafa á Norður Kóreu. Eftir skiptinguna varð þjóðlífið mjög ólíkt í N- og S- Kóreu enda ólík pólitík og efnahagskerfi. Norður Kórea er talin versta niðurstaðan af kommúnisma með því hvernig þau hafa útilokað sig frá heiminum og líka hvernig ríkistjórnin útilokar sig frá fólkinu í Norður Kóreu. Í Norður -Kóreu hefur alltaf verið einn leiðtogi sem ræður öllu, Kim Il Sung til dauða síns 1994, og síðan sonur hans Kim Jong Il til dauðadags 2011, og síðan hefur það verið Kim Jong Un. Frá seinni heimstyrjaöldinni til dagsins í dag hefur N-Kórea orðið mest einangraða landið í heiminum.

Hins vegar hefur  Suður - Kórea orðið fyrir áhrifum  frá Bandaríkjunum og Japan. Suður - Kórea og Bandaríkin hafa verið með náin tengsl þegar  kemur að hernum, pólitík og efnahag. Bandaríkin vildu  að Suður Kórea yrði  lýðræðislegt ríki við fall herstjórnarinnar  1980. Árin 1970-1980 náði Suður-  Kórea áhrifamiklum efnahagslegum árangri  og er núna með mest þróuðu iðnríkjum heimsins. Suður - Kórea náði sér fljótt eftir asíska hrunið 1997 og er núna þriðja sterkasta hagkerfið í Austur - Asíu  á eftir Japan og Kína. Sem dæmi má nefna  litlar suður- kóreanskar verksmiðjur sem byrjuðu á að selja einfaldar matavörur, frábært dæmi um það er Samsung.

bottom of page