top of page

Hversu hættuleg er stefna Norður-Kóreu  sínu eigin landi og öðrum löndum?

 Norður-Kórea hefur nógu mikið plútóníum til að gera átta kjarnorkusprengjur, en þeir nota þær einnig sem ógn gegn löndum eins og Ameríku. Norður-Kórea er líka með fimmta stærsta her í heimi (1.3 milljónir) og 180.000 sérsveitamenn. En fólkið sjálft er í hættu vegna laga Norður-Kóreu. sem dæmi má nefna  að það má bara horfa á Norður-Kóreskar sjónvarpsstöðvar og tala við fólk frá Norður-Kóreu. Brot á þessari reglu fylgir annað hvort löng fangelsisvist eða dauði. Það er líka skylda að allir 17 ára menn sem eiga ekki nóga peninga  til að borga ákveðnum stjórnmálamönnum þurfa að fara í herinn og vera þar í minnsta lagi 10 ár á meðan konur verða í 7 ár. Herinn sjálfur er með úrelt vopn frá seinni heimstyrjaöld og mjög úrelt stýringakerfi í tölvum sem er bara gott til að stýra kjarnorkusprengju.  En herinn er með einn áhugaverðan hlut sem lætur fólk líta tvisvar, þeir hafa 180000 sérsveitamenn, en enginn veit hvort þetta séu vel þjálfaðir menn sem kunna að nota flest vopn vel eða ef þetta eru bara bændur í skotheldum vestum. Ef þetta er alvöru sérsveit þá er alvöru hætta ef það myndi koma stríð en ef ekki þá hefur Norður-Kórea stóran her en ekki rosalega öflugan her og það er ekki að fara hræða neinn. Ef Norður-Kórea myndi fara í stríð við T.D. Suður –Kóreu myndu þeir ná að taka yfir hana en þeir myndu bara halda henni í svona 3 daga þangað til þeim verður rústað út af úreltum vopnum.

bottom of page