top of page

Hvernig komst Norður Kórea í ástandið sem það er dag ?
Ástandið í Norður Kóreu er hræðilegt, meiri hluti þjóðarinnar lifir í mjög mikilli fátækt og flestir eru hungraðir. Norður Kórea hefur litið til sameinuðu þjóðanna með að fá matvælaaðstoð en þetta nægir samt ekki nógu marga. Ríkistjórnin er spillt og hugsar ekkert um velferð almenningsins. Þetta byrjaði þegar að Kóreu stríðið átti sér stað og Kóreu var skipt í Norður og Suður Kóreu. Rússarnir réðu yfir norður hlutanum og Bandaríkin réðu yfir suður hlutanum. Rússar löguðu sín kommúnistaáhrif yfir Norður Kóreu og innan við mjög stuttan tíma var landið með einræðisherra. Hugmyndin sjálf um að hafa einræðisherra er ekki svo slæm en fljótlega eða seinna fattar einræðisherra af kröftunum sem hann hefur og fer að vera sjálfselskur,frekur og maður með allt of mikið af peningum og völd, Kim Jong Un er frábært dæmi um það. Allir í Norður Kóreu eru alnir upp til að halda að einræðisherrarnir í landinu eru guðir og þeir sem eru ámóti kerfinu eða hafa öðruvísi skoðanir verða drepnir á staðnum. Þegar að túristamenn koma í Norður Kóreu er bara sýnt þeim ákveðna staði, það er aldrei sýnt alvöru ástandið. Það hafa margir sloppið frá Norður Kóreu og þá kom sannleikurinn fram um hvernig alvöru ástandið er í Norður Kóreu.

bottom of page