top of page

Hvers vegna gera engin önnur lönd neitt í ofbeldinu sem á sér stað í Norður Kóreu?
Margir spyrja sig spurninguna af hverju kraftmikill lönd einsog Bandaríkin sem monta sig um þeirra áhrif á mannréttindi að blanda sig inn í stríðs mál um allan heim geri ekki eitthvað til að hjálpa Norður Kóreu. Eins skrítið og það er er ekkert land sem finnst að það þurfi að breyta ástandinu í landinu og breyta um stjórn. Breyta stjórn í Norður Kóreu mundi geta bjargað 200þúsundunum manna sem eru í þrælabúðum líklegast fyrir glæpastarfsemi ættingjana sína eða þá að stöðva kjarnorkustríð. Staðan er mjög brothætt og með einhverju skrefi gæti kveikst í ákveðnum atvikum. Stríðið milli norður og Suður Kóreu endaði í raun aldrei og það gæti leitt til þess að Norður Kórea mundi fara eftir upprunalega planinu sínu og gera árás á Seoul höfuðborg Suður Kóreu sem er stutt frá landamærunum. Bandaríkin sem styðja Suður Kóreu vilja helst forðast stríði og líka Kína. Ef að eitthvað kæmi fyrir Norður Kóreu mundi fólk reina koma sér úr landinu og mundi flæða inn fólki við landamærin milli Kína og Norður Kóreu.

bottom of page