
Kóreu Stríðið
Nýlega eftir að Kóreuskaga var skipt í tvo hluta langaði Kim II Sung að sameina allan Kóreuskaga undir stjórn kommúnista þannig hann fékk vopn og leiðsögn frá Sovétríkjunum til að skapa miklan her og árið 1950 fékk hann leyfi hjá Stalín til að ráðast á Suður-Kóreu. Her Suður-Kóreu var ekki vel útbúinn, þeir höfðu enga skriðdreka eða flugvélar og átti líka í miklum vandræðum með skæruliða, þannig það virtist eins og þeir voru sigraðir fljótlega. En svo var þeim bjargað þegar Bandaríkinn komu inn með sinn flota til að tryggja sigur yfir höfum, þeir komu líka með flugvélar og fallbyssur til að styðja landherinn. Á suðausturenda Kóreuskagans er hafnarborgin Pusan, Pusan var borgin þar sem allir herflutningar Bandaíkjamanna komu en Pusan var orðið stríðsvæði og eina það sem þeir gátu gert var að halda varnarlínu. Af öllum Kóreuskaganum var Pusan eina svæðið það sem Suður-Kórea hafði, en í hvert skipti sem Norður-Kórea reyndi að gera sókn á þá var þeim hrint um leið. Þegar Bandaríkinn voru voru tilbúnir með sinn her ákváðu þeir að gera óvænta árás á Seoul og eftir það þá þurftu Norður-Kórea að bakka og Kóreuskaginn var jafn aftur. Pusan var núna orðinn stöðug borg og hélt áfram að streyma inn hermönnum, sem gerði þeim kleift að ná Pyongyang. Þegar Pyongyang fór í hendur Suður-Kóreu var taflið búið að snúast við og Norður-Kórea var kominn ansi nálægt landamærum Kína, bandamenn Norður-Kóreu. Kína hafði haldið sér úr stríðinu þangað til nú vegna þeir voru vissir að Norður-Kórea væri með þetta og þeir vildu ekki hafa nein óðarfa mannfall . Suður-Kórea ætlaði sér að ná í aðra borg en þeir vissu ekki að her Kína voru komnir í stríðið og þ. Eftir það kom Kína með sinn her til hjálpar Norður-Kóreu og þeir börðust mörgum sinnum við Suður-Kóreu í tvö ár þangað til að Jósef Stalín dó og sovétríkinn ákváðu að stríðið ætti að enda. Árið 1953 27.Júlí kom vopnahlé og þá var stofnað Suður-Kórea og Norður-Kórea. En eftir stríðið voru báðar hliðar með hagkerfið í rúst. út um allan Kóreuskaga voru sprengjuför og fullt af skemmdum landbúnaði. Með hjálp frá Bandaríkjunum náði Suður-Kórea að nútímavæða og iðnvæða sig sjálfa. Á meðan var Norður-Kórea alveg ein og þurfti að byrja frá grunni.